Núna er ég komin til Íslands og hérna er miiiklu heitara en í elsku Amsterdam. Það er jákvætt. Síðasta helgi var skemmtileg og ég hitti margar af mínum uppáhalds - ekki dónalegt það. Núna tekur við íslenskt líf, hvað sem það nú þýðir - en ég er bara nokkuð spennt. Svipmyndir helgarinnar:
Wednesday, 15 February 2012
Wednesday, 8 February 2012
Mazzo - Amsterdam.
Nú fer senn að líða að heimför, já ég er að flytja heim. Til Íslands. Ég er nú ekki búin að vera það lengi í útlöndum en hæfilega lengi til þess að finnast það skrítið að fara til Íslands og vera þar.
Fyrir ári síðan í mun heitari febrúarmánuði en núna, fór ég í fyrsta sinn til Amsterdam. Ég rölti um þessa litlu sveitaborg meðal kanalana og varð skotin. Skotin í Amsterdam. Fyrsta kaffihúsið sem ég fór inná í Amsterdam var Mazzo, staðsett á Rozengracht 114, ekki svo langt frá Dam. Flottar og nútímalegar innréttingar, góð tónlist og þæginlegt andrúmsloft. Á laugardaginn fór ég aftur á Mazzo, ég tók með mér bók og las, drakk te með ferskri myntu og naut þess að vera til, þennan síðasta laugardag í Dam.
Tuesday, 7 February 2012
Sumar 2012.
Þetta er ekkert nema góð viðbót við kubb. Ég pant eiga svona sumarið 2012. Fyrir þá sem ekki vita þá virkar þetta þannig að skipst er á að taka einn kubb úr "virkinu" þangað til það hrinur. Sá sem veldur því, tapar! Must Must Must have.
Sunday, 5 February 2012
I just haven't met you yet.
I'm not surprised, not everything lasts
I've broken my heart so many times, I stopped keeping track
Talk myself in, I talk myself out
I get all worked up, then I let myself down
I tried so very hard not to lose it
I came up with a million excuses
I thought, I thought of every possibility
And I know someday that it'll all turn out
You'll make me work, so we can work to work it out
And I promise you, kid, that I give so much more than I get
I just haven't met you yet.
- Bublé.
I've broken my heart so many times, I stopped keeping track
Talk myself in, I talk myself out
I get all worked up, then I let myself down
I tried so very hard not to lose it
I came up with a million excuses
I thought, I thought of every possibility
And I know someday that it'll all turn out
You'll make me work, so we can work to work it out
And I promise you, kid, that I give so much more than I get
I just haven't met you yet.
- Bublé.
Skype.
Þessi litla Yndislega manneskja fær stundum að hringja í frænku sína á Skype. Það er alltaf jafn gaman. Það er svona þegar stóra frænka á heima langt langt í burtu. Það er spurning hvernig hún hugsar þetta og hvort hún almennt fatti þetta. Ætli hún haldi kannski að ég búi inni í tölvunni?
Friday, 3 February 2012
Copenhagen May 2011.
Snjókornin falla niður af himninum, bílarnir spóla á götunum og fólkið er dúðað í sínar hlýjustu flíkur með rautt nef og frískandi bleikar kinnar. Það er alltaf smá sjarmi yfir snjónum, þó sér í lagi þegar maður liggur upp í sófa með teppi og eins og eitt kertaljós á borðinu. Ég læt hugann oft reika til hlýrri daga og hversu yndislegt það er þegar sólin skín. Það er kannski minn veikleiki, það er að segja að lifa ekki í núinu og finnast grasið grænna hinu megin.
Við Kari-Anne vinkona mín fórum á fallegum vordegi í Fredriksberg Have og lágum á teppum í sólbaði. Ég hef sjaldan upplifað svona heitan maí mánuð eins og í Danmörku í fyrra. Það var yndislegt. Garðurinn var fullur af stúdentum sem opnuðu bjór, spiluðu fótbolta og hlógu hátt. Við ákváðum að ná okkur í smá lit áður en við skelltum okkur í bekkjarpartý. Ég sakna Kaupmannahafnar.
Wednesday, 1 February 2012
Vetrarsól.
Í Amsterdam er fallegur "vetur". Jú það komu smá snjókorn síðustu daga sem eru farin núna. Í dag er kalt en sólin skín, sem ég elska. Sólin er bezt ... í heimi.
Ólafur Haukur Símonarson
Það er komin vetrartíð
Með veður köld og stríð
Ég stend við gluggann
Myrkrið streymir inn í huga minn,
Þá finn ég hlýja hönd
Sál mín lifnar við
Eins og jurt sem stóð í skugga,
En hefur aftur litið ljós
Mín vetrar sól.
Ólafur Haukur Símonarson
Subscribe to:
Posts (Atom)





