Tuesday 22 May 2012

Dreamer.

You may Say I am a Dreamer. But I am not the Only One!

                                                                          (www.piccsy.com)

Wednesday 16 May 2012

Ég.

Ég hlæ hátt. Ég elska skó. Ég vil bara eiga öklasokka - alla í sama lit. Ég elska þegar fólk hlær að bröndurunum mínum. Ég tek tímann í flugvél. Ég get ekki hugsað mér að eiga öðruvísi tölvu en Mac. Ég fíla ömmu. Ég er mjög óþolinmóð. Ég naga neglurnar. Ég er brussa. Ég hugsa aldrei áður en ég tala. Ég er pirruð í löppunum þegar ég fer að sofa. Ég gleymi öllu, allstaðar. Ég hata að vakna. Ég opna ekki augun strax þegar ég vakna, þó svo ég sé komin fram úr rúminu. Ég ofhugsa allt. Ég gleymi seint. Ég bíð með það í dag sem ég get gert á morgun. Ég plokka mig minnst einu sinni í viku. Ég vil vera í háhæluðum skóm í eldhúsinu. Ég hlusta á hiphop. Ég er ennþá skotin í Eminem... já og í Guðjóni Val. Ég tala Dónalega. Ég borða hráan fisk- oft. Ég er ýtinn. Ég fæ oftast það sem ég vil. Ég litaraða í fataskápinn minn. Ég elska fiskibollur. Ég elska að koma öðrum á óvart. Ég elska Aquarius. Ég elska Ísland. Ég þoli ekki Kjóa. Mér finnst það Karlmannsverk að Grilla.