Saturday 29 September 2012

With Child.









Ein af mínum uppáhalds tók myndir af mér í Heiðmörk um síðustu helgi, mikið rosalega er hún flink. Ef ykkur langar að skoða myndirnar hennar þá er hún með heimasíðu, sjá hér.  Hún verður á Íslandi eitthvað áfram ef ykkur vantar myndatöku fyrir nær hvaða tækifæri sem er. Það er svo gaman að eiga myndir eftir hana, takk Ingibjörg***


Jón í Lit.

Fann þessa einstaklega fallegu platta sem nefndir eru "Jón í lit", sem gerðir voru í fyrra í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar heitins. Mér finnst þessir plattar ekkert smá flottir og væri alveg til í nokkra svona uppá vegg heima hjá mér, þjóðernisrembunni sjálfri.


Þeir voru gerðir í 20 mismunandi litum, það væri gaman að eiga þrjá til fjóra svona sem passa saman, hvaða liti myndir þú velja?

... ég er alveg massaskotiníþessu***

Wednesday 19 September 2012

Haust.

Nú er komið Haust. Mikið sem ég er að elska þegar veðrið er akkurat eins og í morgun. Loftið var kalt og ó svo ferskt. Sólin skein svo hún yljaði mér meðan ég beið eftir strætó við sjóinn. Reykjavík var falleg. Með haustinu byrjar maður líka að kveikja á kertum sem er rómantískt svo við tölum nú ekki um haustlitina sem eru að byrja að myndast allt í kring. Ég fíla Haust.  







Tuesday 18 September 2012

Monki Wants.

 Ég vil.








Það verður klárlega flikkað uppá fataskápinn eftir að litli gaur kemur í heiminn með smá Monki***




Saturday 1 September 2012

Á Þínum Vörum?

Þessi auglýsing snerti mig, held meira að segja að ég hafi fengið smá kökk í hálsinn og tár í augun. Það sem maður er viðvæmur þessa dagana. Rosalega falleg og vel unnin auglýsing líka.






Ég ætla að kaupa svona gloss. Þú getur líka gert það hér. 

Dís