Saturday 25 February 2012

Plötur.

Að hlusta á plötur er yndislegt. Hljóðið er einhvernvegin svo raunverulegt að mér líður stundum, ef ég lygni aftur augunum, eins og að hljómsveitin sé í herberginu með mér. Mér finnst líka mjög mikil stemnning að setja plötu á fóninn og passa að nálin hitti á réttan stað og passa að hún skemmist ekki - það er einhvernvegin bara allt öðruvísi upplifun að hlusta á plötur. Stemmning.





Monday 20 February 2012

Batman.


I cant make you Love me.

Í gær var konudagurinn á Íslandi og fæstir sem létu það fram hjá sér fara. Hands down verð ég nú að viðurkenna að mér finnst nú ekkert rosalega gaman að vera single á þessum fallega degi. Þó kannski sérlega eftir að hafa unnið í blómabúð í þónokkur ár og hitta þessa sætu stráka á öllum aldri kaupa blóm og með því fyrir sína heittelskuðu. Ég er alveg hopeless ég veit. Í gærdag sá ég svo nokkra pósta þessu lagi með Bon Iver á Facebook, hann er svo flottur strákurinn. Yndislegt.


Wednesday 15 February 2012

There is always Hope.

                                                     http://mylittletornado.tumblr.com/

Last Weekend.

Núna er ég komin til Íslands og hérna er miiiklu heitara en í elsku Amsterdam. Það er jákvætt. Síðasta helgi var skemmtileg og ég hitti margar af mínum uppáhalds - ekki dónalegt það. Núna tekur við íslenskt líf, hvað sem það nú þýðir - en ég er bara nokkuð spennt. Svipmyndir helgarinnar: 






Wednesday 8 February 2012

Mazzo - Amsterdam.

Nú fer senn að líða að heimför, já ég er að flytja heim. Til Íslands. Ég er nú ekki búin að vera það lengi í útlöndum en hæfilega lengi til þess að finnast það skrítið að fara til Íslands og vera þar.  

Fyrir ári síðan í mun heitari febrúarmánuði en núna, fór ég í fyrsta sinn til Amsterdam. Ég rölti um þessa litlu sveitaborg meðal kanalana og varð skotin. Skotin í Amsterdam. Fyrsta kaffihúsið sem ég fór inná í Amsterdam var Mazzo, staðsett á Rozengracht 114, ekki svo langt frá Dam. Flottar og nútímalegar innréttingar, góð tónlist og þæginlegt andrúmsloft. Á laugardaginn fór ég aftur á Mazzo, ég tók með mér bók og las, drakk te með ferskri myntu og naut þess að vera til, þennan síðasta laugardag í Dam. 








Tuesday 7 February 2012

Sumar 2012.

Þetta er ekkert nema góð viðbót við kubb. Ég pant eiga svona sumarið 2012. Fyrir þá sem ekki vita þá virkar þetta þannig að skipst er á að taka einn kubb úr "virkinu" þangað til það hrinur. Sá sem veldur því, tapar! Must Must Must have. 


Sunday 5 February 2012

I just haven't met you yet.

I'm not surprised, not everything lasts
I've broken my heart so many times, I stopped keeping track
Talk myself in, I talk myself out
I get all worked up, then I let myself down


I tried so very hard not to lose it
I came up with a million excuses
I thought, I thought of every possibility


And I know someday that it'll all turn out
You'll make me work, so we can work to work it out
And I promise you, kid, that I give so much more than I get
I just haven't met you yet. 


                                   - Bublé.

Skype.

Þessi litla Yndislega manneskja fær stundum að hringja í frænku sína á Skype. Það er alltaf jafn gaman. Það er svona þegar stóra frænka á heima langt langt í burtu. Það er spurning hvernig hún hugsar þetta og hvort hún almennt fatti þetta. Ætli hún haldi kannski að ég búi inni í tölvunni?











Friday 3 February 2012

Copenhagen May 2011.

Snjókornin falla niður af himninum, bílarnir spóla á götunum og fólkið er dúðað í sínar hlýjustu flíkur með rautt nef og frískandi bleikar kinnar. Það er alltaf smá sjarmi yfir snjónum, þó sér í lagi þegar maður liggur upp í sófa með teppi og eins og eitt kertaljós á borðinu. Ég læt hugann oft reika til hlýrri daga og hversu yndislegt það er þegar sólin skín. Það er kannski minn veikleiki, það er að segja að lifa ekki í núinu og finnast grasið grænna hinu megin. 

Við Kari-Anne vinkona mín fórum á fallegum vordegi í Fredriksberg Have og lágum á teppum í sólbaði. Ég hef sjaldan upplifað svona heitan maí mánuð eins og í Danmörku í fyrra. Það var yndislegt. Garðurinn var fullur af stúdentum sem opnuðu bjór, spiluðu fótbolta og hlógu hátt. Við ákváðum að ná okkur í smá lit áður en við skelltum okkur í bekkjarpartý. Ég sakna Kaupmannahafnar. 









Wednesday 1 February 2012

Vetrarsól.

Í Amsterdam er fallegur "vetur". Jú það komu smá snjókorn síðustu daga sem eru farin núna. Í dag er kalt en sólin skín, sem ég elska. Sólin er bezt ... í heimi.


Það er komin vetrartíð 
      Með veður köld og stríð
      Ég stend við gluggann 
      Myrkrið streymir inn í huga minn,
      Þá finn ég hlýja hönd
      Sál mín lifnar við
      Eins og jurt sem stóð í skugga,
      En hefur aftur litið ljós
      Mín vetrar sól.

 Ólafur Haukur Símonarson