Tuesday 27 September 2011

A Date With Me!

Næsta laugardag ætla ég á date með mér! Já það er svona tími það sem maður gerir bara það sem manni sjálfum finnst skemmtilegt og nýtur þess að vera með sjálfri sér. Ef þú ræktar ekki sambandið við sjálfan þig, afhverju ættu þá aðrir að nenna að rækta samband með þér? En hvað um það - hvað gerir maður annars á stefnumóti með sjálfum sér!? Ég ætla að:

*Hafa mig til og vera fín
*Setja uppáhalds tónlistina mína í eyrun (Haglél með Mugison at the moment).
*Vera í uppáhaldsskónum mínum -með uppáhalds skartgripinn minn. 
*Kynnast Amsterdam
*Taka myndir
*Kaupa mér skó
*Setjast niður við canalinn og njóta augnabliksins!
*Tala við ókunnuga
*Fara á flóamarkað
*Kaupa ljóðabók

Sjáum hvort ég eigi eftir að uppfylla þetta allt - en ég er rosalega skotin í hugmyndinni.. 


                                                     (Stefnumót með Mér , Febrúar 2011, Amsterdam)