Monday 4 April 2011

B for Beautiful... or?

Ég er algjör B manneskja, mér finnst kvöld og nætur sjarmerandi, mér finnst gott að liggja í sófanum og lesa með kertaljósin logandi og njóta kyrrðarinnar sem nóttin ber með sér. Einmitt vegna þess að ég er B manneskja þá finnst mér ekkert rosalega gaman að vakna í skólann á mánudagsmorgnum! Í morgun flaug það í gegnum hugann minn - afhverju, eftir rúmlega 25 ár, er ennþá erfitt að vakna - ætti ég ekki að vera orðin vön því, nei ég bara spyr!